fbpx
Föstudagur 28.febrúar 2025
Fréttir

Þorlákshafnarmálið: Landsréttur breytti sýknu í fimm ára fangelsi – Sagði að konan hefði stungið sig sjálf – Hnífurinn fannst nýþveginn við vaskinn

Heimir Hannesson
Föstudaginn 1. október 2021 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur snéri í dag við sýknudóm héraðsdóms yfir manni á sjötugsaldri sem ákærður var fyrir manndráp eða sérstaklega hættulega líkamsárás með því að stinga konu með 7 cm löngum hníf.

Lögregla var sunnudagskvöldið 4. nóvember 2018 kölluð til að heimili í Þorlákshöfn og tók á móti henni kona með mikla blæðingu úr sári neðarlega á kvið. Lögreglan brást við með því að setja þrýsting á blæðinguna. Maðurinn sem hringdi sagði að hún hefði veitt sér sjálfri áverkana. Konan var klædd í brjóstahaldara en ber að neðan, að því er fram kemur í dómnum. Töluvert blóð var á vettvangi og á svefnsófanum þar sem konan lá.

Segir í dómi Héraðsdóms að enginn hnífur eða annað áhald sem hefði getað valdið skurðinum hafi fundist, en þó hafi fundist hnífur við vask í íbúðinni sem bersýnilega hafði nýlega verið þrifinn. Þá fannst alblóðugt viskastykki innst inni í neðri eldhússkáp.

Konan hélt því fram við lögreglu að maðurinn hefði stungið sig. Maðurinn, eins og áður sagði, hélt því staðfastlega fram að hún hefði veitt sér sjálf áverkana.

Í niðurstöðu kafla dóms héraðsdóms segir:

Ákærði og brotaþoli eru ein til frásagnar um það sem gerðist og þá ber að hafa í huga að bæði voru undir áhrifum áfengis, sérstaklega brotaþoli. Þá verður ekki fram hjá því litið að brotaþoli skoraðist undan skýrslugjöf fyrir dómi og þá getur dómkvaddur matsmaður ekki útiloka að að um sjálfsáverka sé að ræða, en skortur á ítarlegri lýsingu á áverka, vöntun á ljósmyndum af honum og það að enginn réttarmeinafræðingur hafi skoðað brotaþola skömmu eftir atvikið, takmarki mjög að hans mati réttarmeinafræðilegt mat. Með hliðsjón af öllu framansögðu verður að telja að það mikill vafi leiki á sekt ákærða að ekki verði hjá því komist að sýkna hann af öllum kröfum ákæruvaldsins í máli þessu.
Landsréttur véfengdi hins vegar framburð mannsins. Kemur þar meðal annars fram að 40 mínútur hafi liðið frá því að ákærði í málinu hringdi í son sinn sem síðar kom á vettvang og hringdi á neyðarlínuna. Í héraðsdómi hafði maðurinn hins vegar sagt að lítill tími hefði liðið frá því að hann hefði orðið þess var að konan væri slösuð og þar til hann hringdi á sjúkrabíl.

Þá sögðu sérfræðivitni sem komu fyrir Héraðsdóm að staðsetning áverkana væri óvenjuleg fyrir sjálfsáverka. Þá leggur Landsréttur áherslu á það í sinni niðurstöðu að ekkert tól hafi fundist nálægt konunni, né blóðslóð frá konunni og að stað þar sem hún hefði getað falið slíkt áhald.

Segir loks í dómi Landsréttar: „Að öllu framangreindu virtu verður talið að sannað sé svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi stungið brotaþola með hnífi 4. nóvember 2018.“

Skal maðurinn sæta fimm ára fangelsisdóms, greiða sakarkostnað og laun verjanda síns, samtals um 3,4 milljónir króna.

Dóm Landsréttar má sjá hér í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

World Class hjónin skála í nýja húsinu – Nágrannar óánægðir með snigilshraða á framkvæmdum

World Class hjónin skála í nýja húsinu – Nágrannar óánægðir með snigilshraða á framkvæmdum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kristján lést í hörmulegu slysi á Þingvallavegi – Safnað fyrir eiginkonu hans og syni

Kristján lést í hörmulegu slysi á Þingvallavegi – Safnað fyrir eiginkonu hans og syni
Fréttir
Í gær

Ólafur segir marga misnota veikindaréttinn: „Upp hafa komið hreint ótrúleg mál“

Ólafur segir marga misnota veikindaréttinn: „Upp hafa komið hreint ótrúleg mál“
Fréttir
Í gær

Kona sem þvinguð var í vændi þarf að sitja í íslensku fangelsi

Kona sem þvinguð var í vændi þarf að sitja í íslensku fangelsi