Sænska lögreglan leitar nú að 55 ára karlmanni sem er grunaður um að bera ábyrgð á sprengingunni sem varð í fjölbýlishúsi í Gautaborg aðfaranótt þriðjudags. Lögreglan segir að öllu sé tjaldað til við leitina en hún verði mjög erfið og líklega sé maðurinn í felum. Maðurinn bjó eitt sinn í húsinu, þar sem sprengingin varð, og er þekktur fyrir að hafa safnað miklu magni af allskonar efnum að sér, efnum sem hugsanlega má nota til sprengjugerðar.
Samkvæmt fréttum sænskra fjölmiðla beindist grunur fljótlega að manninum og hefur lögreglan leitað hans af krafti og gert nokkrar húsleitir á stöðum þar sem talið var að maðurinn héldi sig en án árangurs. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald að sér fjarstöddum.
Sænska ríkisútvarpið hefur eftir talsmanni lögreglunnar að ekki sé talið að almenningi stafi hætta af manninum en hann hefur að sögn lengi verið upp á kant við yfirvöld vegna ýmissa mála og hefur talið sig hafa sætt ósanngjarnri meðferð.
Aftonbladet hefur eftir íbúa í fjölbýlishúsinu að hann hafi farið út á svalir strax eftir sprenginguna og hafi þá séð manninn standa fyrir utan. Hann sagðist hafa öskrað á hann: „Hvað gerðirðu?“ og hafi maðurinn þá horfið á brott.
Um 25 íbúar voru fluttir á sjúkrahús eftir sprenginguna, þar af voru 6 alvarlega slasaðir. Eignatjónið er gríðarlegt og ekki er vitað hvenær íbúarnir geta flutt inn á nýjan leik.