Í grein í vísindaritinu BMC Infectious Diseases lýsa þeir þessum eftirköstum. Þeir segja meðal annars frá 77 ára karlmanni sem veiktist af COVID-19 en veikindin voru væg. Hann fékk meðhöndlun á sjúkrahúsi í Tókýó.
Á meðan hann var veikur þjáðist hann af svefnleysi og kvíða og lagaðist það ekki eftir að hann var búinn að ná sér af veikindunum. En nokkrum vikum síðar bættust fleiri einkenni við eftirköstin. „Nokkrum vikum eftir að hann var útskrifaður byrjaði hann að finna fyrir djúpum og vægðarlausum óþægingum í endaþarmi,“ skrifa læknarnir og segja að maðurinn hafi aldrei fundið fyrir neinu þessu líkt áður en hann veiktist af COVID-19.
Óþægindin hurfu ekki þegar maðurinn svaf og hann varð að taka svefnpillur til að geta sofið. Læknar greindu hann með „restless anal syndrome“ sem minnir á fótaóeirð en þó auðvitað á öðrum stað í líkamanum.
Japönsku læknarnir segja að þar sem maðurinn hafi aldrei áður fundið fyrir neinu af þessu tagi fyrr en eftir COVID-19 veikindi skilgreini þeir þetta sem eftirköst af COVID-19 veikindum hans.