Samkvæmt því sem segir í frétt New York Post þá hnaut Morrison nánast um þetta við rúmlega 100 ára gamla gröf. „Þegar ég uppgötvaði þetta brá mér rosalega. Þetta var frekar óhugnanlegt,“ sagði Morrison í samtali við Jam Press.
„Þegar ég skoðaði þetta betur sá ég að þetta var hár á manneskju,“ sagði hann.
Myndband af þessu hefur farið mikinn á TikTok en á því sést dökkt hár standa út undan legsteininum.
Morrison sagðist telja að hárið standi út undan legsteininum því rót á tré, sem er nærri, sé orðin svo stór að hún nái inn í gröfina. Hún hafi einfaldlega ýtt hluta af jarðnesku leifunum upp að yfirborðinu.