Kenningin gengur út á að læknar komi í veg fyrir að óbólusett fólk fái svokallaða „kraftaverkameðferð“ við COVID-19 og láti það viljandi deyja. NBC News skýrir frá þessu. Fram kemur að samsæriskenningasmiðir og andstæðingar bólusetninga hvetji fólk til að meðhöndla sig sjálft heima ef það smitast af kórónuveirunni.
Á þessum síðum á samfélagsmiðlum kynna sumir af andstæðingum bóluefnanna meðal annars „kórónuveirukúr“ sem læknar segja að ekki hafi verið sýnt fram á að hafi nein áhrif. Þar er um að ræða notkun sýklalyfsins Ivermetctin sem er venjulega notað fyrir dýr. „Það eru alls engar sannanir fyrir að það virki og það getur hugsanlega verið eitrað,“ hefur Anthony Fauci, helsti farsóttarfræðingur Bandaríkjanna, sagt um lyfið. Aðrir hvetja til meðferða þar sem fólk á að skola kverkarnar með mold eða anda vetnisperoxíði að sér. Læknar segja að báðar þessar aðferðir geti verið stórhættulegar.
Efasemdir um bólusetningar fara ekki fram hjá starfsfólki bandarískra sjúkrahúsa því sífellt fleiri óbólusettir eru lagðir inn á gjörgæsludeildir og margir þeirra hafa ekki leitað til læknis í tíma.
Einn þeirra sem verður mikið var við þann áróður sem andstæðingar bólusetninga reka er Wes Ely, læknir á fjórum gjörgæsludeildum og prófessor við Vanderbilt University School of Medicine. Á sama tíma og fleiri reyna að lækna sig sjálfir fjölgar innlögum á gjörgæsludeildirnar og hefur NBC News eftir Ely að 97% innlagðra séu óbólusettir. „Þetta miðaði í rétta átt en nú erum við að tapa baráttunni og það stórt. Það er eitthvað að gerast á Internetinu,“ sagði hann. Hann sagðist einnig hitta sífellt fleiri sem vilja ekki fá neina læknisaðstoð fyrr en daginn sem þeir deyja. „Það er ekki sjaldan sem það gerist,“ sagði hann.