Sky News skýrir frá þessu. Með þessu draga þau væntalega úr áhyggjum margra um að enn banvænni afbrigði veirunnar komi fram á sjónarsviðið. Bell segir að svo geti farið strax næsta vor að veiran verði orðin svipuð og venjuleg kvefpest vegna ónæmis fólks vegna bólusetninga og smits. Hann segir að Bretland sé komið yfir það versta í faraldrinum og ástandið ætti að vera í lag eftir næsta vetur.
Stéphane Bancel, forstjóri Moderna, sagði á mánudaginn að heimsfaraldurinn gæti verið afstaðinn eftir ár þar sem aukin framleiðsla á bóluefnum tryggi allri heimsbyggðinni bóluefni.
Sarah Gilbert, sem vann að þróun bóluefnisins frá AstraZeneca, sagði nýlega að veirur hafi tilhneigingu til að veikjast eftir því sem þær dreifa sér meira. Þegar Bell var spurður út í þessi ummæli hennar af Times Radio tók hann undir þessi orð Gilbert.
Bancel sagði í samtali við Neuw Zuercher Zeitung að um mitt næsta ár ættu lyfjafyrirtækin að geta séð öllum jarðarbúum fyrir bóluefnum, þau hafi aukið framleiðslugeta sína það mikið. „Þeir sem verða ekki bólusettir munu sjálfir koma sér upp ónæmi því Deltaafbrigðið er svo smitandi. Með þessu munum við komast í stöðu svipaða og er með flensuna. Þú getur annað hvort látið bólusetja þig og veturinn verður góður fyrir þig eða þú gerir það ekki og átt á hættu að veikjast og jafnvel enda á sjúkrahúsi,“ sagði hann.