Jafet Sigfinnsson hefur verið í ágætis vandræðum með að ákveða hvaða flokk hann ætlar að kjósa. Hann greip þá til sinna ráða og prófaði að „breyta kyni“ (e. gender-swap) oddvita flokkana til að sjá hvort það myndi segja honum eitthvað.
„Það gerði það ekki,“ segir Jafet í færslu á Facebook þar sem hann birtir myndirnar. Færslan hefur vakið mikla kátínu meðal netverja og gaf hann DV góðfúslegt leyfi til að deila færslunni áfram. Myndirnar hafa einnig vakið lukku á Twitter.
Jafet gaf einnig oddvitunum nýtt nafn. Sjáðu myndirnar hér að neðan.
Svo í bónus gerði Jafet líka forsetahjónin.