„Ég held að við munum sjá bólusetningarvottorð í tengslum við ferðalög í mörg ár. Þetta er krafa sem gæti varað árum saman,“ sagði hann í samtali við Dagens Nyheter.
Svíar hafa fellt flestar sóttvarnaaðgerðir vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar úr gildi en hvað varðar komur til landsins eru nokkrar aðgerðir enn í gildi. Til dæmis fær fólk frá ríkjum utan ESB, EES og Sviss ekki að koma til landsins nema með ákveðnum undantekningum.
74,1% Svía, 16 ára og eldri, hafa lokið bólusetningu samkvæmt tölum frá sænska landlæknisembættinu.
Í haust verður opnað á möguleika fyrir þriðja skammt af bóluefni fyrir þá sem eru í sérstökum áhættuhópum. Það eru aðallega íbúar á dvalarheimilum aldraðra, fólk eldra en 80 ára og fólk með lélegt ónæmiskerfi.
Eftir áramót er reiknað með að öðrum landsmönnum verði boðið upp á þriðja skammtinn.
Í ágúst sagði Tegnell að ekki sé hægt að útrýma veirunni og því þurfi aðgerðir að miðast að því að bólusetja fólk gegn henni ef takast á að kveða faraldurinn niður. „Matið er að það sé ekki hægt að útrýma veirunni og af þeim sökum ætti bólusetningaáætlunin að vera langtímamarkmið sem beinist að því að draga úr alvarlegum veikindum og dauðsföllum. Það er enn mikilvægt að við beinum sérstakri athygli að hópum og íbúum á svæðum þar sem lítil þátttaka hefur verið í bólusetningu,“ sagði hann.