Morgunblaðið skýrir frá þessu. Fram kemur að í sumarbyrjun hafi greiningardeildir bankanna spá því að 600-800 þúsund erlendir ferðamenn myndu koma til landsins á árinu. Í lok ágúst spáði Ferðamálastofa því að þeir yrðu um 890 þúsund. En svo verður ekki hefur blaðið eftir Jóhannesi Þór Skúlasyni, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, þeir verði nær því að verða 600.000.
Hann sagði að þetta geri að verkum að erfitt sé að meta mannaflaþörfina fyrir veturinn en hún muni væntanlega fara minnkandi. „Við erum einfaldlega með færri ferðamenn á veturna en á sumrin, rétt eins og önnur nágrannaríki okkar, en við sjáum líka fram á það að ákveðnir hópar muni lítið láta sjá sig í vetur, hópar sem hafa verið okkur mjög mikilvægir,“ er haft eftir honum.
Hann sagði einnig að það hafi haft áhrif á ferðaþjónustuna að Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hafi sett Ísland á hæsta hættustig í ágúst. „Það hafði ekki afgerandi áhrif á það sem hafði þegar verið bókað þegar þetta gerðist en það hefur alveg haft merkjanleg áhrif á eftirspurnina í kjölfarið, sérstaklega núna í september,“ sagði hann og bætti við að líklega muni fjöldi fyrirtækja, sérstaklega á landsbyggðinni, þurfa að leggja niður starfsemi sina i vetur. Það sé því mikilvægt að framlengja ráðningarstyrki ríkisins til fyrirtækja í ferðaþjónustu fram á næsta sumar.