Meðal ráðgjafanna eru Sean Spicer, fyrrum fjölmiðlafulltrúi Trump, H.R. McMaster, fyrrum þjóðaröryggisráðgjafi Trump, og Kellyanne Conway, fyrrum ráðgjafi hans.
Málið var rætt á fréttamannafundi í Hvíta húsinu á miðvikudaginn þar sem Jen Psaki, fjölmiðlafulltrúi Biden, var fyrir svörum. Hún sagði það rétt vera að forsetinn hafi hvatt ráðgjafana til að segja upp en að öðrum kosti verði þeir reknir. „Markmið forsetans með þessu er það sama og hver einasti forseti myndi hafa: Að tryggja að ráðgjafar og starfsfólk í hinum ýmsu embættum sé hæft til að gegna störfum sínum og að það starfi í samræmi við þau pólitísku gildi sem forsetinn stendur fyrir,“ sagði hún. The Guardian skýrir frá.
Ráðgjafarnir 11 voru á valdatíma Trump ráðnir til starfa í svokölluðu „military service advisory boards,“ en það eru ráðgefandi nefndir sem veita fimm herskólum ráðgjöf en ráðgjöf þeirra er ekki bindandi. Meðal verkefna nefndanna er meðal annars að veita ráð um málefni á borð við móral og aga, námsskrá, kennslu, útbúnað nemenda, fjármál, kennsluaðferðir og fleira. Í hverri nefnd situr fólk sem er tilnefnt af þinginu og forsetanum. Á valdatíma Trump sátu þeir áfram í þessum nefndum sem forveri hans, Barack Obama, hafði tilnefnt.
En Biden hefur greinilega ekki áhuga á að nýta sér starfskrafta þeirra sem Trump útnefndi.
Psaki vildi ekki tjá sig mikið um málið en vísaði því á bug að það snúist um flokkslínur. „Ég læt öðrum eftir að meta hvort Sean Spicer, Kellyanne Conway og aðrir úr hópnum séu hæf og nægilega ópólitísk til að geta sinnt þessum störfum en hæfnikröfur forsetans snúast ekki um flokksskírteini fólks, heldur um hvort fólk er hæft til að sinna starfinu í samræmi við kröfur og gildi þessarar ríkisstjórnar,“ sagði hún.
President Biden, I'm not resigning, but you should. pic.twitter.com/HuRYM4bLYP
— Kellyanne Conway (@KellyannePolls) September 8, 2021
Ýmislegt bendir til að Biden verði að gera alvöru úr hótun sinni um að reka fólkið úr starfi því ekki er að heyra að það hafi í hyggju að segja upp. Kellyanne Conway birti bréf til Biden á Twitter þar sem hún beindi orðum sínum beint að honum og gagnrýndi störf hans í Hvíta húsinu. Hún skrifaði meðal annars: „Ég segi ekki upp en það ættir þú að gera.“