fbpx
Mánudagur 17.mars 2025
433Sport

Lengjudeild kvenna: KR meistari og Afturelding upp um deild – ÍA og Grótta fallin

Ísak Gabríel Regal
Fimmtudaginn 9. september 2021 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Keppt var í lokaumferð Lengjudeildar kvenna í kvöld.

KR-ingar tryggðu sér sæti í efstu deild um síðustu helgi en gátu unnið titilinn með sigri á Gróttu í kvöld. Afturelding og FH mættust í úrslitaleik um annað sætið í efstu deild á næstu leiktíð og fimm lið áttu möguleika á falli fyrir leiki kvöldsins.

KR sýndi yfirburði sína með 3-0 sigri gegn Gróttu á útivelli. Kathleen Rebecca Pingel kom KR í 2-0 foryustu með tveimur mörkum í fyrri hálfleik og Aiden Hogan Keane gerði út um leikinn með marki lokakafla leiksins. KR vinnur þar með Lengjudeildartitilinn en Grótta endar í 9. sæti og fellur þar með um deild.

Afturelding fylgir KR upp í Pepsi Max deildina næsta sumar en liðið burstaði FH-inga 4-0 á heimavelli. Það var markalaust þegar að tæpar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en Sigrún Gunndís Hraðardóttir skoraði fyrsta markið eftir hornspyrnu frá Rögnu Guðrúnu Guðmundsdóttur. Ragna Guðrún bætti svo við tveimur mörkum áður en að Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir skoraði fjórða markið á 84. mínútu.

ÍA tókst ekki að bjarga sér og endar tímabilið á botninum eftir hetjulega frammistöðu gegn Haukum í kvöld. Haukar komust í 3-0 í leiknum en Skagakonum tókst að jafna í 3-3. Það dugði hins vegar ekki til og leikur liðið í 2. deild næsta sumar.

Þá vann Augnablik 2-0 sigur gegn HK á útivelli. Báðum liðum tekst þar með að bjarga sér frá falli en HK endar tímabilið í síðasta örugga sætinu með 16 stig. Augnablik er sæti og stigi fyrir ofan.

Víkingar unnu þá Grindavík 1-0 á Víkingsvelli. Víkingur endar þar með leiktíðina í 4. sæti með 31 stig. Grindavík og Augnalik ljúka keppni með 17 stig í 6/7. sæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Aftur rauk Arteta úr viðtali – Sneri fljótt aftur

Aftur rauk Arteta úr viðtali – Sneri fljótt aftur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arteta segir að vonarstjarnan geti spilað í nýrri stöðu í framtíðinni

Arteta segir að vonarstjarnan geti spilað í nýrri stöðu í framtíðinni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Liverpool mun hafa betur gegn Chelsea

Liverpool mun hafa betur gegn Chelsea
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

England: Hojlund skoraði í góðum útisigri Manchester United

England: Hojlund skoraði í góðum útisigri Manchester United
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hinrik seldur til Noregs – Kvaddur með fallegu myndbandi

Hinrik seldur til Noregs – Kvaddur með fallegu myndbandi
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Valsmenn höfnuðu „hlægilegu“ tilboði Skagamanna í Tryggva

Valsmenn höfnuðu „hlægilegu“ tilboði Skagamanna í Tryggva
433Sport
Í gær

England: Arsenal vann Chelsea í mjög bragðdaufum leik

England: Arsenal vann Chelsea í mjög bragðdaufum leik
433Sport
Í gær

Rekinn úr vinnunni fyrir að stunda kynlíf með eiginkonunni á vinnustaðnum – Lét kveikja á öllum ljósum og var mjög sjáanlegur

Rekinn úr vinnunni fyrir að stunda kynlíf með eiginkonunni á vinnustaðnum – Lét kveikja á öllum ljósum og var mjög sjáanlegur