Lögreglumennirnir létu strax til skara skríða til að reyna að aðstoða Hunter og lyftu rúmi henni upp til að ná hinum óboðna gesti sem hafði hrætt hana svo mikið. Og viti menn, undir rúminu var könguló og mölfluga að auki. Lögreglumennirnir fjarlægðu „ógnvættinn“ og Hunter gat róað sig. Hún skýrði sjálf frá þessu á Facebook.