Greint var frá því í gær að karlmaður væri í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum vegna rannsóknar á kynferðisbrotamáli sem kom upp í heimahúsi nóttina áður. Ung kona á þrítugsaldri er þolandi mannsins en henni var flogið á neyðarmóttökuna í Reykjavík til að safna sönnunargögnum um málið.
Sá sem grunaður er um kynferðisbrotið Guðmundur Elís Sigurvinsson sem ítrekað hefur ratað í fjölmiðla fyrir ofbeldsverk sín. Þannig kærði fyrrverandi kærasta hans hann fyrir þrjár grófar líkamsárásir sem áttu sér stað á þremur árum. Hlaut Guðmundur Elís 12 mánaða fangelsisdóm fyrir brot sín en hann gekk laus á skilorði þegar árásin í Vestmannaeyjum átti sér stað.
Guðmundur Elís hefur verið fluttur á fangelsið á Hólmsheiði þar sem hann mun nú afplána fyrri dóm.
Umræða hefur verið um Guðmund Elís á samfélagsmiðlinum Twitter í dag þar sem hann var þó ekki nafngreindur. Einkaþjálfarinn Ólöf Tara Harðardóttir, liðsmaður aðgerðahópsins Öfga, er ein þeirra sem hefur vakið athygli á málinu.
Hvað á að fórna mörgum konum fyrir þennan mann??? https://t.co/jUnHwIt1zt
— Ólöf Tara (@OlofTara) September 3, 2021
Í athugasemdunum við færslu Ólafar má sjá að fleiri furða sig á því að Guðmundur hafi gengið laus. „Það sýður á mér, af hverju er honum sleppt aftur og aftur? Það er greinilegt að hann sér ekkert rangt við neitt sem hann hefur gert. “ segir til að mynda kona nokkur. „Skil ekki hvernig hann gengur laus,“ segir önnur.