Satoru er leiðtogi Kudo–kai mafíunnar, eða yakuzahópsins, sem er talin samanstanda af um 220 manns. Hann þvertók fyrir aðild að umræddum málum. Ekki er útilokað að það sé rétt hjá honum að mati sumra japanskra fjölmiðla sem segja að ekkert tengi hann beint við afbrotin. Sky News skýrir frá þessu.
Samt sem áður dæmdi dómari í Fukuoka hann til dauða en þetta er í fyrsta sinn sem mafíuleiðtogi er dæmdur til dauða í Japan.
„Ég bað um sanngjarnan dóm . . . Þú munt sjá eftir þessu það sem þú átt eftir ólifað,“ sagði Satoru við dómarann eftir dómsuppkvaðningu.
Kudo–kai er stærsta og valdamesta mafían í Kitakyushu og eru meðlimir hennar þekktir fyrir árásir þar sem þeir nota vélbyssur og handsprengjur.
Yakuza, sem þýðir glæpamaður, hafa verið liðin áratugum saman í Japan en margir telja slík mafíusamtök nauðsynleg til að halda ofbeldi frá götum landsins sem þykja í raun einstaklega öruggar og glæpir eru fátíðir, að minnsta kosti glæpir sem eru kærðir til lögreglunnar. Yfirvöld hafa þó að undanförnu gengið harðar fram en áður gegn samtökum af þessu tagi og með versnandi efnahagsástandi hafa fleiri gengið til liðs við glæpagengi.
„Glæpirnir voru sérstaklega slæmir. Það var ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en dauðadómi,“ sagði Ben Adach, dómari, eftir dómsuppkvaðninguna.
Satoru var fundinn sekur um að morð á fyrrum forstjóra útgerðarfyrirtækis. Hann var einnig fundinn sekur um árás, með hnífi, á hjúkrunarfræðing á stofu þar sem hann leitaði sér aðstoðar 2013. 2012 stóð hann að baki skotárás á lögreglumann sem hafði rannsakað mál honum tengd. Hann lifði af en hlaut varanleg mein á fótum.
Satoru var handtekinn í Taílandi fyrir þremur árum en hann hafði verið eftirlýstur af japönsku lögreglunni í 10 ár.