fbpx
Mánudagur 07.apríl 2025
Pressan

Skotinn til bana á veitingastað í Linköping um hábjartan dag

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 26. ágúst 2021 06:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um klukkan 13 í gær var maður á fertugsaldri skotinn til bana á veitingastað í Skäggertorp í Linköping. Hann var nýsestur við borð sitt og maturinn var kominn á borðið þegar skothvellir glumdu. Maðurinn varð fyrir 5-6 skotum, meðal annars í höfuðið, og lést á vettvangi. Maðurinn hafði oft komið við sögu lögreglunnar og hafði tengsl við þekkt glæpasamtök.

Aftonbladet segir að tveir vinir mannsins hafi setið með honum við borðið þegar hann var myrtur. Þeir sluppu ómeiddir og eru ekki grunaðir um aðild að morðinu.

Vitni segja að tveir menn hafi flúið frá vettvangi og er þeirra nú leitað. Lögreglan var við vettvangsrannsóknir í gær og yfirheyrði fjölda manns. Enginn hefur verið handtekinn enn sem komið er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þetta segir gamalt fólk að sé það besta og versta við að eldast

Þetta segir gamalt fólk að sé það besta og versta við að eldast
Pressan
Í gær

Ætlar þú að fá þér hvolp? Þetta þarftu þá að hafa klárt

Ætlar þú að fá þér hvolp? Þetta þarftu þá að hafa klárt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn segja að tímaferðalög séu möguleg og að fólk hafi nú þegar farið í tímaferðalög

Vísindamenn segja að tímaferðalög séu möguleg og að fólk hafi nú þegar farið í tímaferðalög
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfarþegar hvattir til að kaupa ekki ferðatöskur í þessum litum

Flugfarþegar hvattir til að kaupa ekki ferðatöskur í þessum litum