VG hefur eftir talsmanni lögreglunnar að ástand mannanna sé stöðugt en alvarlegt. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. Lögreglan hefur unnið að rannsókn málsins í alla nótt og fjöldi vitna hefur verið yfirheyrður.
VG hefur eftir vitni að það hafi heyrt 3 til 6 skothvelli. „Í fyrstu taldi ég ekki að um skothvelli væri að ræða. Ég leit út um gluggann og sá tvo menn koma hlaupandi. Skömmu síðar kom sá þriðji,“ sagði vitnið.