Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson var gestur í útvarpsþættinum Harmageddon í dag. Þar ræddi hann mál KSÍ og framhaldsskólakennarans Hönnu Bjargar Vilhjálmsdóttur, sem hefur verið ansi áberandi í fjölmiðlum og þjóðfélagsumræðunni síðustu daga.
Hanna hefur haldið því fram að landsliðsmenn í knattspyrnu hafi framið kynferðisofbeldi, og sakað KSÍ um að þagga niður þetta ofbeldi landsliðsmannanna. Síðan hefur KSÍ sent frá sér yfirlýsingu og vísað ásökunum Hönnu á bug.
Sjá einnig: Segir þekkta landsliðsmenn hafa komist upp með nauðgun hjá KSÍ
Frosti Logason, annar þáttastjórnandi Harmageddon spurði Jakob Bjarnar hvað Hanna hefði fyrir sér í þessu máli „Ekkert. Ekki neitt,“ svaraði hann og hélt svo áfram:
„Vandinn er að nú hefur þetta mál bólgnað út, en það grundvallast á rökvillu, sem er kannski eðlilegt í samfélaginu í dag. Þar sem að við erum komin einhvernveginn á þann stað að orðrómur, eða dómstóll götunnar og dómar sem að þar eru kveðnir upp, að þeir eigi bara að gilda.“
„Það er skrýtið að kennari sem á að hafa í heiðri gagnrýna hugsun, og svona fundimental atriði réttarríkisins að hver maður sé saklaus uns sekt sé sönnuð, beri þetta á borð. Hvað er hún að tala um? Hvað vill hún að KSÍ geri? Vill hún að KSÍ setji á fót sérstaka rannsóknarlögregludeild?“ Eða á orðrómurinn bara að gilda?“ spurði Jakob.
Þá tók hann fram að hann fyrirliti nauðgara, liti á þá sem aumingja, og þekkti nauðgunarmál vel þar sem að náinn ættingi hans hefði verið þolandi nauðgunar. Þá tók hann einnig fram að hann vildi að samfélagið tæki betur utan um þessi mál. „Ég veit alveg hvað ég er að tala um,“ sagði hann.
„Ég vil ná í þessi kvikindi, en við verðum að gera það rétt. Þessi málflutningur er að pólarísera umræðuna. Það er fólk sem er búið að slá eignarhaldi sínu á þessa mjög svo verðugu baráttu. Við verðum að kveða þetta samfélagsmein í kútinn, en þannig að eitthvað hald sé í.“
Jakob sagði að hvort sem að fólki líki betur eða verr, yrði að fara leið réttarríkisins í baráttunni gegn kynferðisofbeldi, og hélt því fram að málflutningur Hönnu væri að gera þeirri baráttu gríðarlegt ógagn. „Mér verður bara heitt í hamsi.“ sagði hann.
Hann gagnrýndi þó KSÍ sem honum hefur fundist láta eins og dómstóll í sumum tilfellum. „En KSÍ getur að einhverju leiti sjálfum sér um kennt með þetta endalausa bull sitt um fyrirmyndatal, og þeir eru sjálfir með einhverja aganefnd. Þeir eru að dæma menn í sektir fyrir að praktísera tjáningarfrelsið sitt í viðtölum við fjölmiðla og annað slíkt. Þannig er kannski ekki óeðlilegt að fólk dragi þá ályktun að KSÍ eigi að stofna sérstaka deild rannsóknarlögreglu,“
Þá tók hann fram að honum fyndist KSÍ ekki hafa það hlutverk að skera á um svona mál þar sem það væri ekki hlutverk þess. Knattspyrnusambandið væri ekki dómstóll.