Knattspyrnusamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lögð er á hersla á það að sambandið setji allar ábendingar og kvartanir um meint ofbeldi fari í viðeigandi ferli.
Yfirlýsing knattspyrnusambandsins kemur í kjölfarið af því að Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari og forkona jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands skrifaði pistil á Vísir.is í síðustu viku.
Hanna steig þá fram með þungar ásakanir á hendur íslenskum knattspyrnumönnum og sagði meðal annars. „Fyrir nokkru steig ung kona fram og sagði frá hópnauðgun sem hún varð fyrir árið 2010. Lýsingin á ofbeldinu er hroðaleg og glæpurinn varðar við margra ára fangelsi. Það hafði þó ekki meiri áhrif á gerendurna en svo að þeir gerðu grín að nauðguninni daginn eftir. Forherðingin algjör. Í frásögninni kemur fram hvaða afleiðingar þessi unga kona hefur þurft að burðast með. Lýsingin er þyngri en tárum taki. Þolandanum var eindregið ráðlagt að kæra ekki, við ofurefli væri að etja,“ skrifaði Hanna í pistli sínum.
Í yfirlýsingu KSÍ kemur fram að sambandið leggi áherslu á fagleg vinnubrögð. „Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) leggur áherslu á fagleg vinnubrögð þegar fram koma ábendingar eða kvartanir um meint ofbeldi sem með einum eða öðrum hætti má rekja til starfsemi innan hreyfingarinnar. Knattspyrnuhreyfingin á Íslandi er fjölmenn og eru skráðir iðkendur um 30 þúsund. KSÍ hefur ríka hagsmuni af því að sá mikli fjöldi sem starfar eða tekur þátt í starfsemi knattspyrnuhreyfingarinnar hér á landi upplifi öryggi og velferð í starfi sínu eða þátttöku og sambandið tekur skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi,“ segir í yfirlýsingu sambandsins.
Hanna Björg sakaði KSÍ Um kvennfyrirlitningu og skrifaði. „Nú er KSÍ leiðandi afl í íslensku íþróttalífi. Fram til þessa hefur sambandinu ekki tekist að vera afgerandi í jafnréttismálum né náð miklum árangri, þó svo að heimasíða þeirra skarti fínni jafnréttisstefnu og -áætlun. Uppeldishlutverk KSÍ er stórt og mikið. Börn, ungmenni og fullorðið fólk líta upp til þeirra leikmanna sem vel gengur og þeir eru dýrkaðir og dáðir. Þau sem lengst ná eru fyrirmyndir þúsunda, það er mikil ábyrgð.“
Sambandið segist hafa bætt alla verkferla sína þegar fyrsta bylgja Metoo fór af stað. „Ef tilkynningar um mál sem tengjast einelti eða ofbeldi (m.a. kynferðisofbeldi) koma inn á borð sambandsins er tryggt að þau fari í viðeigandi ferli. Allir verkferlar slíkra mála hafa verið endurbættir og hafði fyrsta bylgja #Metoo m.a. áhrif þar á. Jafnréttisáætlun og jafnréttisstefna sambandsins hafa verið uppfærðar og er þar fjallað sérstaklega um kynferðislegt ofbeldi. Þá hefur KSÍ staðið fyrir vinnustofu um kynferðisofbeldi fyrir aðildarfélög sín og bætt fræðslu um kynferðisofbeldi inn í námsefni þjálfaramenntunar.“
KSÍ segir að mál er varðar kynferðisofbeldi séu vandmeðfarin og kalli á faglega meðferð. „Eins og gefur að skilja eru mál sem varða kynferðisofbeldi vandmeðfarin og kallar meðferð þeirra á fagleg, vönduð og ekki síður yfirveguð vinnubrögð. Ef grunur er um lögbrot er ávallt hvatt til aðkomu lögregluyfirvalda og eins er leitað aðstoðar hjá Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála, sem er sérfræðingur ríkisins í meðferð slíkra mála.“
KSÍ ætlar ekki að tjá sig opinberlega um einstök og segir sambandið. „KSÍ getur ekki tjáð sig um einstök mál sem upp kunna að koma á opinberum vettvangi vegna trúnaðar og persónuverndarmála. Rétt er þó að ítreka að KSÍ gerir engar tilraunir til að þagga niður ofbeldismál eða hylma yfir með gerendum. Dylgjum um slíkt er alfarið vísað á bug. KSÍ er ávallt tilbúið til að gera betur og víkur sér ekki undan málefnalegri gagnrýni á starf sambandsins. Því er samtalið um ofbeldismál mikilvægt og ábendingum sem eru til þess fallnar að bæta hag iðkenda og áhugafólks um knattspyrnu vel tekið.“