fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Etna er með vaxtarverki

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 22. ágúst 2021 07:30

Etna á Sikiley. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef maður leitar upplýsinga um hæð ítalska eldfjallsins Etnu á netinu kemur fram að það sé 3.350 metra yfir sjávarmáli. En nú þarf að breyta þessum upplýsingum því eldfjallið fræga er með vaxtarverki.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ítölsku eldfjallastofnuninni. Fram kemur að Etna sé nú orðin 3.357 metra há. Ástæðan er að eldfjallið hefur verið virkt á þessu ári og hefur sent frá sér mikið magn af hrauni og öðrum efnum sem hafa byggst upp við suðausturgíg þess sem er nú orðinn hæsti punktur þess.

Fjórir gígar eru á toppi Etnu en fram að þessu hefur sá sem er í norðaustri verið sá hæsti en hann náði 3.350 metra hæð 1980.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin
Pressan
Fyrir 6 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu