Umrædd rannsóknarstofa hefur oft verið nefnd sem hugsanlegur upptakastaður faraldursins og eru bandarískar leyniþjónustustofnanir nú að rannsaka það sérstaklega. Kínversk yfirvöld hafa alltaf neitað því en á rannsóknarstofunni var unnið við rannsóknir og tilraunir með kórónuveirur.
TV2 hefur eftir Embarek að hann hafi ekki séð nein bein sönnunargögn fyrir að þessi kenning sé rétt en telur þetta samt sem áður mjög líklegt og segir að það þurfi að rannsaka þetta nánar. „Starfsmaður sem smitast þegar hann er úti á vettvangi að taka sýni er ein af líklegu kenningunum,“ sagði hann.
Hann fór fyrir sérfræðingahópi WHO sem fór til Wuhan í febrúar. Í kjölfar rannsóknar hópsins sagði WHO að „mjög ólíklegt“ væri að veiran hefði borist frá rannsóknarstofunni. Embarek segir að hann hafi viljað segja að það væri „ólíklegt“ en „mjög“ hafi verið bætt við eftir mikinn þrýsting frá Kínverjum.
Vísindamenn hafa sagt að líklega hafi kórónuveiran orðið til í leðurblökum af ákveðinni tegund og borist úr henni í menn. Umrædd tegund leðurblaka lifir ekki villt nærri Wuhan og eina fólkið sem vitað er til að hafi verið nærri leðurblökum af þessari tegund eru starfsmenn fyrrnefndrar rannsóknarstofu.