„Ég hélt ekki að ég yrði bara drepin. Ég hélt að ég myndi einnig lenda í öðru,“ sagði hún í samtali við Dana Bash í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar CNN „Being . . .“.
Bash spurði hana þá hvort það hafi haft áhrif á þessar hugsanir hennar að hún hefur áður orðið fyrir kynferðisofbeldi og sagði AOC þá að það hafi haft áhrif.
Hún sagði einnig að kvenhatur og kynþáttahyggja hafi ýtt undir árásina á þinghúsið. „Kynþáttahyggja hvítra og feðraveldið tengjast á margan hátt. Það er mikið um kynferðislega tengingu í þessu ofbeldi,“ sagði hún.
Hvað varðar fyrsta kjörtímabil hennar sagði hún að það hafi verið erfitt. Hún kom eins og stormsveipur inn á þing fyrir Demókrata eftir að hafa gjörsigrað gamalreyndan og innmúraðan þingmann flokksins í forkosningum hans og síðan í kosningunum í New York. Hún sagði að sumir þingmenn Demókrata hafi ekki enn sætt sig við að hún sitji á þingi og heilsi henni ekki einu sinni.