CNN skýrir frá þessu og segir að ofurtölvur séu nú að vinna úr gögnunum sem eru að sögn mjög mikil að umfangi.
Í upphafi heimsfaraldursins var kenningin um að veiran hefði sloppið út frá rannsóknarstofunni í Wuhan afgreidd sem samsæriskenning sem ætti sér enga stoð í raunveruleikanum. Á síðustu mánuðum hefur þó orðið breyting hér á innan bandaríska stjórnkerfisins og sífellt fleiri hafa viljað láta rannsaka hvort veiran hafi sloppið út frá rannsóknarstofunni fyrir mistök. Fyrr í sumar skýrði CNN frá því að embættismenn í ríkisstjórn Joe Biden, forseta, telji jafn miklar líkur á að veiran hafi sloppið úr rannsóknarstofunni og að hún hafi borist í fólk beint úr náttúrunni.
CNN segir að bandarískar leyniþjónustustofnanir hafi komist yfir „gríðarlegan lista“ óunninna gagna um veirur sem voru rannsakaðar í rannsóknarstofunni í Wuhan. Ekki er vitað hvernig leyniþjónustustofnanirnar fengu gögnin en heimildarmenn CNN segja að gögnin séu sett upp á sama hátt og venjulega er gert þegar gögn af þessu tagi eru geymd á netþjónum. Ef þau hafa verið geymd á netþjónum er hugsanlegt að þeim hafi verið stolið þaðan.
Bandarísk yfirvöld eru því hugsanlega með sannkallaða gullnámu í formi þessara gagna en hins vegar standa þau frammi fyrir tveimur vandamálum í tengslum við úrvinnslu þeirra. Annað er að það þarf gríðarlega öflugar tölvur til að vinna úr þeim og gera þær þannig úr garði að hægt sé að lesa úr þeim. Af þeim sökum er nú verið að nota ofurtölvur hjá orkumálaráðuneytinu við það. Hitt er að þeir vísindamenn sem koma að úrvinnslu gagnanna verða að vera með nægilega háa öryggisvottun til að fá aðgang að þeim og þeir verða einnig að geta lesið kínversku. Ekki eru margir sem falla í þennan flokk og það gerir verkefnið sérstaklega erfitt segja heimildarmenn CNN.