Thomas var einnig sviptur erfðarétti eftir Mariu og hann þarf að greiða báðum börnum þeirra bætur.
Morðið átti sér stað 26. október á síðasta ári, skömmu eftir að Maria hafði ekið börnum þeirra hjóna í skóla. Í heila viku hafði Thomas unnið að undirbúningi morðsins. Hann var ástfanginn af annarri konu en vildi ekki skilja í annað sinn á ævinni en vildi um leið losna við eiginkonu sína.
Hjónin höfðu glímt við erfiðleika í hjónabandinu um skeið og var samband þeirra slæmt þegar hér var komið við sögu. Þegar Maria var komin heim lamdi Thomas hana með steini í hnakkanna, eins fast og hann gat sagði hann fyrir dómi. Því næst hélt hann fyrir augu hennar, nef og munn þar til hún kafnaði.
Næstu daga reyndi hann að leysa lík hennar upp í ýmsum efnum en það tókst ekki að fullu. Því næst hlutaði hann líkið í sundur og brenndi og gróf síðan restina nærri brú í Sundbylille.
Hann tilkynnti lögreglunni síðan um hvarf Mariu og sagði hana hafa farið að heiman í slæmu andlegu ástandi og gaf til kynna að hún hefði verið í sjálfsvígshugleiðingum. Umfangsmikil leit lögreglunnar að Mariu bar ekki árangur og rannsókn málsins miðaði hægt en að lokum var Thomas handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mánuðum saman vildi hann ekkert við málið kannast en fyrr í sumar játaði hann loks að hafa myrt Mariu og vísaði lögreglunni á staðinn þar sem hann gróf líkamsleifar hennar.
Hann átti lokaorðin fyrir dómi í gær: „Ég drap Mariu. Ég tók sjálfur þá ákvörðun um að taka líf hennar. Ég svipti börnin mín stærstu ástinni í lífi þeirra. Ég á sök á miklum harmleik. Daglega óska ég þess að þetta hefði ekki gerst.“