Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Sigríði að ef innlögnum á gjörgæslu fjölgi vegna COVID þá verði fleiri rými opnuð. Ef álag verði mikið þurfi að kalla fólk úr sumarleyfi og leita í bakvarðalistann eins og gert hefur verið í fyrri bylgjum faraldursins. „En við erum að reyna á meðan það er ekki nauðsyn að leyfa fólki að vera í sumarfríi. Fólkið okkar er búið að standa langa vakt og er þreytt,“ sagði hún einnig.
Hún sagði ekkert benda til að innlögnum á gjörgæslu sé að fara að fjölga en það muni koma í ljós þegar líður á yfirstandandi bylgju faraldursins. „Það hafa margir greinst undanfarið en þeir eru ekki búnir að vera veikir nógu lengi til þess að vera farnir að sýna þessa týpísku sjúkdómsmynd sem verður þegar þeir veikjast. Við förum að sjá það eftir viku, tíu daga. Þá sjáum við hver innlagnatíðnin verður miðað við bylgjurnar á undan. Það eru vísbendingar um að það er ekki eins há innlagnatíðni og áður. En við tökum enga áhættu, við grípum til aðgerða ef það stefnir í að við þurfum að manna betur eða manna meira eins og á gjörgæslu,“ er haft eftir henni.