fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Pressan

Typpi í klemmu – Kalla varð slökkvilið á sjúkrahúsið

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 26. júlí 2021 06:03

Hvaða stærð vilja konur? Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfsfólk á Huddersfield Royal Infirmary sjúkrahúsinu varð að kalla eftir aðstoð slökkviliðs vegna sjúklings eins síðasta fimmtudag. Um karlmann var að ræða og er óhætt að segja að typpið hans hafi verið í klemmu.

Af einhverjum ástæðum hafði maðurinn sett ryðfrían hring utan um getnaðarlim sinn. Starfsfólk sjúkrahússins náði honum ekki af og varð að kalla eftir aðstoð slökkviliðsmanna sem eru alvanir því að skera málm, þó kannski ekki utan af typpum.

YorkshireLive segir að sjúklingurinn vilji ekki koma fram undir nafni og þarf engan að undra. Stuart Oliver, læknir, sagði þetta hafa verið mjög sársaukafullt fyrir manninn. „Ég hef ekki hugmynd um af hverju maðurinn gerði þetta en giska á að það hafi átt að hjálpa honum að halda reisn. Vandinn er að blóðið rann niður í typpið en það þarf líka að fara til baka en ef bólga kemur upp þá kemst það ekki til baka. Þetta hefur verið ótrúlega sársaukafullt fyrir hann og það varð að fjarlægja hringinn eins fljótt og hægt var því líkurnar á drepi jukust sífellt,“ sagði Oliver og bætti við: „Það er undarlegt að velja málmhring því það er hægt að teygja gúmmí meira.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn – Erfðir skipta meira máli en það sem þú borðar

Ný rannsókn – Erfðir skipta meira máli en það sem þú borðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hversu oft á að skipta á rúminu?

Hversu oft á að skipta á rúminu?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gera 500 götur í París að göngugötum

Gera 500 götur í París að göngugötum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta þénuðu geimfararnir sem sátu fastir í geimnum í 9 mánuði

Þetta þénuðu geimfararnir sem sátu fastir í geimnum í 9 mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Barnið sagði að það væri skrímsli undir rúminu – Barnapían fékk áfall þegar hún kíkti sjálf

Barnið sagði að það væri skrímsli undir rúminu – Barnapían fékk áfall þegar hún kíkti sjálf
Pressan
Fyrir 4 dögum

Busavígsla fór úr böndunun: „Við viljum ekki tala um það sem gerðist fyrir framan hann“

Busavígsla fór úr böndunun: „Við viljum ekki tala um það sem gerðist fyrir framan hann“