Washington Post segir að Mitch McConnell, leiðtogi flokksins í öldungadeildinni, sé nú kominn í hóp þeirra sem hvetja fólk til að láta bólusetja sig og vara við því að ef það er ekki gert sé hætt við að þróunin snúist við og þjóðin festist í greipum faraldursins. Á vikulegum fréttamannafundi sínum sagði McConnell að hann vilji hvetja fólk til að leiða þær raddir hjá sér sem gefa slæm ráð varðandi bólusetningar.
Dagana á undan höfðu fleiri áhrifamenn innan flokksins hvatt fólk til að láta bólusetja sig en enn eru þó uppi raddir meðal áhrifamanna og annarra flokksmanna sem eru fullar efasemda um bólusetningar og dreifa jafnvel röngum upplýsingum um öryggi bóluefna og áhrif þeirra.
Steve Scalise, þingmaður frá Louisiana, var lengi mótfallinn bólusetningum en hann lét bólusetja sig um síðustu helgi og hvatti aðra til að gera það sama. Hann er annar valdamesti Repúblikaninn í fulltrúadeildinni.
Meðal sumra þáttastjórnanda hjá Fox News hefur það sama gerst. Þeir hafa kynt undir efasemdum um bóluefnin en eru nú farnir að hvetja fólk til að láta bólusetja sig. „Ég get ekki sagt þetta nógu oft. Nógu margir hafa dáið. Það er engin þörf fyrir að fleiri deyi,“ sagði Sean Hannity, þáttastjórnandi, á mánudaginn en hann hafði áður sagt veiruna vera blekkingu eina.
Í könnun sem CNN gerði í maí kom í ljóst að allir þingmenn Demókrata í báðum deildum höfðu lokið bólusetningu. Hjá Repúblikönum höfðu 44,8% þingmanna í fulltrúadeildinni lokið bólusetningu en í öldungadeildinni var hlutfallið 92%.