Þetta gerðist 14. júlí á síðasta ári í Cheshire á Englandi. BBC skýrir frá þessu.
Fyrir dómi sagði Smith að daginn fyrir morðið hafi hún fengið upplýsingar um að Baines hefði beitt dóttur hennar og son kynferðisofbeldi árum saman þegar þau voru á barnsaldri.
Sonur hennar tók eigið líf 2007 en hafði að sögn skömmu áður sagt móður sinni að „barnaníðingur hefði káfað á honum“ og af þessum sökum sagðist Smith hafa trúað frásögn dóttur sinnar og ákveðið að hefna sín á Baines.
Eftir að hún hafði hellt vatninu yfir hann hljóp hún til nágranna og sagði þeim hvað hafði gerst. Þegar sjúkrabíll kom á vettvang voru kvalir Baines sagðar vera „ólýsanlegar“ og húð hans hékk utan á honum í flyksum. Hann fékk brunasár á 36% líkamans. Hann fór í fjölda aðgerða en lést fimm vikum eftir að Smith hellti vatninu yfir hann.
Hún sagðist hafa gert þetta í mikilli geðshræringu en saksóknari gerði lítið úr þeirri fullyrðingu hennar og benti á að ákveðin skipulagning hefði legið að baki morðinu, þar á meðal þær 13 mínútur sem það tók hana að sjóða vatnið og blanda sykrinum saman við það. Ekki var heldur sýnt fram á að Baines hefði brotið kynferðislega gegn börnum hennar.
Smith getur sótt um reynslulausn eftir 12 ár.