Grunur leikur á að Lukasjenko láti flytja flóttamenn frá Miðausturlöndum til Hvíta-Rússlands með það að markmiði að senda þá áfram til nágrannaríkjanna.
Í Litháen hefur neyðarástandi verið lýst yfir vegna skyndilegs og mikils álags á landamærin en samhliða aukinni spennu á milli ESB og Hvíta-Rússlands hefur mikill fjöldi útlendinga komið yfir landamærin frá Hvíta-Rússlandi. Það á í sjálfu sér ekki að koma mjög á óvart því í ræðu á hvítrússneska þinginu þann 26. maí sagðist Lukasjenko ætla að leggja niður landamæraeftirlit við 680 km löng landamærin að Litháen. „Við stöðvuðum eiturlyf og innflytjendur. Framvegis getið þið sjálf séð um þetta,“ sagði hann.
Það eru ekki aðeins refsiaðgerðir ESB sem fara illa í Lukasjenko og hans fólk. Reiðin beinist einnig að Litháum fyrir að hafa veitt Svetlanda Tikhanovskaja, stjórnarandstöðuleiðtoga, og öðrum pólitískum flóttamönnum húsaskjól og aðstoð.
Nýlega tilkynnti hvítrússneska utanríkisráðuneytið að það segi nú skilið við samning við ESB um að koma í veg fyrir að útlendingar komist inn í ESB. Þetta breytir svo sem ekki miklu því lengi hefur verið vitað að hvítrússneskir landamæraverðir loka augunum fyrir ferðum útlendinga yfir landamærin til ESB.
Litháa grunar að Hvítrússar beinlínis flytji inn flóttamenn frá Miðausturlöndum til þess eins að senda þá áfram til Litháen. Hvíta-Rússland hefur aldrei verið vinsæll áfangastaður en nú landið skyndilega vinsælt hjá ferðaskrifstofum í Írak og Tyrklandi.