Erla Björk Berndsen Pálmadóttir tók upp yndislegt myndband þegar hún tilkynnti átta ára gömlum syni sínum að hann væri að verða stóri bróðir.
Hann á engin systkini en hefur stundum talað um að hann langi til þess, en ég ákvað að segja honum ekki frá þessu fyrr en sama dag og ég kom úr tuttugu vikna sónar og gæti þá tilkynnt honum kynið í leiðinni. Ég var búin að undirbúa þetta með því að sýna honum sónarmyndir af honum sjálfum stuttu áður svo hann myndi átta sig á því hvað þetta væri. En þá hélt hann auðvitað að þetta væri mynd af honum sjálfum,
segir Erla Björk í samtali við Bleikt.
Natan Dagur Berndsen sonur Erlu er mjög spenntur fyrir komandi stóra bróður hlutverki og mun hann líklega standa sig mjög vel í því samkvæmt þessu einlæga myndbandi.
Natan var í leikskóla með Hjallastefnunni og er hann því mjög réttsýnn, því hneikslast hann á móður sinni þegar hún spyr hann hvort samfellan sé í stelpu- eða strákalit.
Litli bróðir Natans er svo væntanlegur í júní og er fjölskyldan að undirbúa komu hans í rólegheitum.