Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og hefur eftir Jóni Bjarka sem sagði að þegar einkaneysla vaxi segi það fljótt til sín en hún hefur vaxið hraðar en bankinn gerði ráð fyrir. Hann vísaði þar meðal annar til þess að væntingavísitala Gallup er í hæstu hæðum.
Morgunblaðið hefur eftir Yngva Harðarsyni, hagfræðingi og framkvæmdastjóra Analytica, að útlit sé fyrir 3,5-3,7% hagvöxt í ár. En fyrirtækið spáði 2,5-3% hagvexti í vor. Vísað er til batamerkja í einkaneyslu.
Samtök iðnaðarins hafa ekki gert hagspá sagði Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur þeirra, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að kröftug merki um viðsnúning í hagkerfinu væru uppi, þar með talið í iðnaðinum. Hann sagðist reikna með að síðari helmingur ársins verði mjög góður og að vöxturinn verði mikill miðað við síðasta ár. Síðasta ár var hins vegar ár samdráttar og enn er nokkuð í land með að ná sömu landsframleiðslu og var fyrir heimsfaraldurinn og niðursveifluna sem honum fylgdi.