fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Vara við annarri tegund „heimsfaraldurs“ sem mun skella á heimsbyggðinni

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 27. júní 2021 17:00

Lake Oroville hefur ekki farið varhluta af þurrkum að undanförnu. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörg þúsund ára saga segir okkur að þurrkar eru ekki nýtt fyrirbrigði. Oft höfum við betur í baráttunni við þá en oft lútum við í lægra haldi. En dökk framtíðarspá segir okkur að við höfum ekki upplifað mikið fram að þessu miðað við það sem bíður okkar.

Breytilegt loftslag, léleg umgengni okkar við vatn og sífellt fleira fólk mun valda því að „heimsfaraldrar“ skelfilegra þurrka munu skella á okkur. Þetta kemur fram í sérstakri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um þurrka. ScienceAlert skýrir frá þessu. Fram kemur að í skýrslunni komi fram að mikill vandi muni steðja að okkur á næstu árum vegna minni úrkomu á mikilvægum stöðum um allan heim. Í skýrslunni er skoðað hvað veldur þessum þurrkum og hvernig við getum tekist á við vatnsskort.

Margir jarðarbúar finna nú þegar fyrir því á eigin skinni að hnattræn hlýnun veldur því að vatn dreifist nú öðruvísi en áður. Í skýrslunni kemur fram að vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum, örari þurrkatímabilum og alvarlegri á sumum svæðum er vatn víða orðið af skornum skammti.

Að minnsta kosti 1,5 milljarður manna hefur orðið fyrir áhrifum af völdum þurrka á síðustu 20 árum og þeir hafa kostað efnahagslífið rúmlega 124 milljarða dollara. Skýrsluhöfundar benda á að venjulega sé munur á tilkynntu tjóni og raunverulegu tjóni og því verði að taka tölum sem þessum með miklum fyrirvara, þær séu mjög varfærnislega áætlaðar. Ekki má heldur gleyma því að í þessum tölum er ekki reiknað með efnahagslífi þróunarríkjanna.

Þegar talið berst að þurrkum dettur flestum í hug að þeir herji á þróunarríkin og afskekkt svæði en um fimmtungur jarðarbúa býr á svæðum sem eiga á hættu að glíma við vatnsskort. Í lok aldarinnar má reikna með að flest ríki heims muni glíma við þurrka af einhverju tagi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 6 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin