Hún hafði neyðst til að víkja skyndilega þar sem bíll kom akandi á mikilli ferð og vildi ökumaður hans komast fram úr. Farþegar í þeim bíl skutu síðan á bíl Joanna. Þetta gerðist á hraðbraut nærri Yorba Linda í Kaliforníu.
Í gær skýrði lögreglan frá því að hún hefði handtekið Marcus Anthony Eriz, 24 ára, og Wynne Lee, 23 ára, vegna málsins. Þau voru handtekin á heimili þeirra í Costa Mesa.
Lögreglan í Orange County segir að parið eigi morðákæru yfir höfði sér en það sé í höndum saksóknara að taka ákvörðun um það.
We are confirming the arrest of the two suspects believed responsible for the shooting death of 6-year-old Aiden Leos. Marcus Anthony Eriz, 24, and Wynne Lee, 23, were arrested at their home in Costa Mesa.
— CHP Santa Ana (@CHPSantaAna) June 7, 2021
Lát Aiden hefur haft mikil áhrif á íbúa í Yorba Linda og hafa margir minnst hans. Fjársöfnun hefur verið hrundið af stað á GoFundMe til styrktar foreldrum hans.
Eriz og Lee voru úrskurðuð í gæsluvarðhald og var tryggingarupphæð þeirra ákveðin ein milljón dollara.
Vitni segjast hafa séð Joanna sýna hinum handteknu löngutöng eftir framúraksturinn og er það kenning lögreglunnar að í kjölfarið hafi parið skotið á bíl Joanna.
Síðustu orð Aiden sitja að vonum fast í huga Joanna: „Þegar ég byrjaði að beygja heyrði ég mjög hátt hljóð. Og sonur minn sagði: „Á!““ Hún stövaði strax og reyndi að stöðva blæðinguna og hringdi í 911 en ekki tókst að bjarga lífi Aiden.