Ummælin lét Xi falla á fundi hjá kommúnistaflokknum. Hann sagði að nauðsynlegt sé að koma kínverskum fréttum og sjónarmiðum Kínverja meira í alþjóðlega fjölmiðla ef takast eigi að kynna rétta mynd af Kína fyrir umheiminum. Ríkisfréttastofan Xinhua skýrir frá þessu. Fréttastofan sagði að Xi hafi einnig sagt að Kína verði að styrkja áróðursvél sína til að hjálpa útlendingum að skilja kommúnistaflokkinn og þær aðferðir sem hann beitir til að styrkja hamingju Kínverja.
Til að ná þessu markmiði þurfa Kínverjar að koma sér upp teymi atvinnumanna á fjölmiðlasviðinu. Einnig þurfi að taka „nákvæma samskiptatækni“ í notkun.
Á síðustu árum hafa Kínverjar í vaxandi mæli gagnrýnt alþjóðlega fjölmiðla fyrir umfjöllun þeirra um Kína. Meðal annars hafa erlendir blaðamenn verið sakaðir um að vera ósanngjarnir í umfjöllun sinni um Kína.
Kínversk stjórnvöld hafa einnig bannað útsendingar BBC World News á öllum sjónvarpsstöðum á meginlandinu en bannið var sett eftir umfjöllun BBC um meðferð Kínverja á Úígúrum í Xinjiang héraði.