Lögregluna grunaði strax að faðir hennar hefði numið hana á brott en hann hafði áður verið sviptur forræði yfir henni af dómara. Telur lögreglan að hann hafi byrlað henni ólyfjan og haft á brott með sér.
Á föstudaginn fannst Daphne síðan fyrir tilviljun að sögn People en nýtt vandamál skaut fljótlega upp kollinum því Daphne er horfin á nýjan leik.
Í fréttatilkynningu frá saksóknara í Hamilton County kemur fram að Daphne, sem er nú 18 ára, hafi fundist í Samson í Alabama fyrir tilviljun. Bærinn er í um fimm klukkustunda akstursfjarlægð frá Chattanooga. Fram kemur að það hafi verið ánægjulegt að geta tilkynnt móður hennar, Rhona Curtsinger, að hún væri fundin. Einnig kemur fram að lögreglan muni halda áfram að leita að föður hennar til að hægt verði að sækja hann til saka.
Daphne fannst fyrir tilviljun þegar lögreglan stöðvaði akstur ökumanns þar sem skráningarnúmeri á bifreið hans voru ekki í lagi og afturljós virkaði ekki. Við athugun kom í ljós að það var Daphnee sem ók bifreiðinni. Lögreglan segir að ekkert hafi bent til að hún væri í hættu og sagðist hún vera á leið á ströndina.
Lögreglumaðurinn, sem stöðvaði akstur hennar, sagði að hún hafi verið horuð og „ósamvinnuþýð“ og vildi ekki segja hvar faðir hennar heldur sig. Hún vildi heldur ekki ræða við móður sína að sögn saksóknara.
Dómari reyndi að sannfæra hana um að ræða við sálfræðing en það vildi hún ekki. Þar sem hún er orðin 18 ára gat lögreglan ekki haldið henni og fór hún því frjáls ferða sinna.
Lögreglan telur að hún búi með föður sínum og að hann gefi henni LSD og marijúana og áfengi. Faðir hennar er tölvusérfræðingur og hefur sérhæft sig í tölvuöryggi og Bitcoin. The News Tribune segir að vegna tölvukunnáttu hans sé nánast útilokað fyrir lögregluna að hafa uppi á honum á grunni netnotkunar hans. Lögreglan telur að feðginin færi sig ört á milli hótela og breyti útliti sínu reglulega með því að lita hár sitt og nota gervitennur.