Víkingur fær 50 þúsund evrur millifærðar á reikning sinn á næstu dögum frá Ítalíu. Venezia er komið upp í efstu deild á Ítalíu eftir seinni leikinn í umspilinu gegn Cittadella. Leikurinn í gær endaði með 1-1 jafntefli liðanna, en fyrri leikurinn fór 1-0 fyrir Venezia.
Tveir Íslendingar eru í herbúðum Venezia, Óttar Magnús Karlsson og Bjarki Steinn Bjarkarson. Bjarki Steinn spilaði um tíu mínútur í fyrri leik liðanna en sat allan tímann á varamannabekknum í kvöld. Óttar Magnús spilaði síðast leik 2. apríl en hann er að glíma við meiðsli.
Óttar Magnús var seldur frá Víkingi til Venezia síðasta sumar og þar var klásúla sem færir Víkingum nú tæpa 7,5 milljón íslenskra króna.
„Peningur sem þú týnir ekki upp af götunni,“ sagði Hjörvar Hafliðason í Dr. Football í dag þegar hann greindi frá þessu í hlaðvarpi sínu í dag.
Óttar Magnús er í þriðja sinn í atvinnumennsku en fyrsta tímabilið hefur gengið erfiðlega vegna meiðsla.