Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að Manchester City hefði ekki unnið ensku úrvalsdeildina á tímabilinu ef þeir hefðu glímt við sömu meiðslakrísu og hans menn.
Liverpool var á toppi deildarinnar um jólin en mikil meiðsli settu strik í reikninginn þegar leið á. City reið á vaðið og rúllaði deildinni upp eftir áramót.
,,Knattspyrnulið er eins og hljómsveit þar sem margir vinna saman og ef það vantar einn þá gæti það enn virkað. En ef það vantar tvo verður það erfitt,“ sagði Klopp í viðtali við Sky Sports.
,,Þetta er eins og ég sagði fyrir þessa leiktíð. Með svona mörg meiðsli var ekki hægt að verða meistari. Ekki séns. Ekki fyrir neinn.“
,,Eins góðir og City eru, ef þeir hefðu verið án þriggja miðvarða sinna, nei (þá hefðu þeir ekki unnið). Líka eiginlega allt tímabilið. Þannig er það.“
Þrátt fyrir að hafa ekki náð að vera í baráttu um titilinn á leiktíðinni þá á Liverpool enn góðan séns á því að ná Meistaradeildarsæti.
,,Við höfum barist, samþykkt erfiðleikanna og gert það besta úr þeim. Ef við vinnum á sunnudag og komumst í Meistaradeildina, þá höfum við gert það besta úr stöðunni,“ sagði þýski stjórinn að lokum.