BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að Conings starfi sem skotþjálfari og hafi því aðgang að fjölda vopna. Lögreglan telur að hann sé meðal annars með vélbyssu og nokkrar skammbyssur.
Conings hefur ítrekað haft í hótunum við Van Ranst frá því að heimsfaraldurinn braust út. Van Ranst og fjölskylda hans eru nú í felum á öruggum stað og njóta verndar lögreglunnar.
Conings er talinn stórhættulegur og er fólk hvatt til að hafa strax samband við lögregluna ef það sér hann. Ekki sé ráðlegt að reyna að gefa sig á tal við hann.
Lögreglan óttast að hann muni ráðast á fólk eða stofnanir fyrst hann nær ekki til Van Ranst. Belgískir fjölmiðlar segja að hann sé hugsanlega mjög ofbeldisfullur öfgamaður.
Hann skildi að sögn eftir sig fjölda bréfa þar sem hann gefur í skyn að hann sé undir það búinn að berjast gegn lögreglunni fram í rauðan dauðann.