Lögreglan hóf þegar leit að Lai Huili og Xu Guoli kom margoft fram í sjónvarpi þar sem hann skýrði á yfirvegaðan hátt frá því að eiginkona hans hefði yfirgefið heimili þeirra að næturlagi. Hann hét einnig háum verðlaunum, sem svarar til um tveggja milljóna íslenskra króna, handa þeim sem gætu komið með upplýsingar sem leiddu til þess að hún fyndist. South China Morning Post skýrir frá þessu en kínverskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um málið að undanförnu.
Fram kemur að lögreglan hafi lagt mikla vinnu í rannsókn málsins. Meðal annars var farið yfir um 6.000 klukkustundir af efni úr eftirlitsmyndavélum nærri heimili hjónanna. En ekkert sást á þessum upptökum. Lögreglan komst því að þeirri niðurstöðu að Lai Huili hefði líklega ekki yfirgefið íbúðina um miðja nótt eins og eiginmaður hennar hélt fram.
Lögreglan beindi því sjónum sínum að Xu Guoli. Ákveðið var að tæma rotþró fjölbýlishússins, sem hjónin bjuggu í, og einnig voru 38 ruslabílar rannsakaðir. Þetta bar árangur því í rotþrónni fundust líkamsleifar Lai Huili.
Xu Guoli var því handtekinn og fljótlega viðurkenndi hann að hafa myrt eiginkonu sína.
Málið var nýlega tekið fyrir dóm og þar kom fram að saksóknarar telja að Xu Guoli hafi lengi unnið að skipulagningu morðsins eða allt frá 2018 en þá slettist upp á vinskap hjónanna. Þessu neitaði hann og sagðist ekki hafa skipulagt morðið. Saksóknarar sögðu hins vegar að kvöldið áður en hann myrti eiginkonu sína hafi hann sett eitthvað í munn hennar svo hún missti meðvitund. Því næst hafi hann sett límband yfir munn hennar og síðan dregið hana inn í baðherbergið þar sem hann skar lík hennar í hluta og setti síðan í hakkavél áður en hann sturtaði hlutum þess niður í salernið og henti öðrum í ruslið.
Xu Guoli var sakfelldur fyrir morð en refsing hans hefur ekki enn verið ákveðin. Áður en dómur var kveðinn upp bað 13 ára dóttir hans dóminn um að dæma hann ekki til dauða því þá myndi hún standa eftir foreldralaus.