Kjartan Henry Finnbogason var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í gær. Þar ræddu þeir Hjörvar Hafliðason, Hrafnkell Freyr Ágústsson og Kristján Óli Finnbogason um það hversu stórt nafn leikmaðurinn er í dönskum fótbolta.
Kjartan Henry er nýkominn aftur til KR frá Esbjerg í Danmörku. Hann hafði leikið þar frá árinu 2014, að undanskildu einu ári í Ungverjalandi tímabilið 2018-2019, með Horsens og Vejle ásamt Esbjerg.
,,Kjartan Henry Finnbogason hefur skilið eftir sig orðspor í Danmörku. Hann er einn af fáum leikmönnum sem allir danskir fótboltaáhugamenn þekkja. Ég hef átt fleiri samtöl um Kjartan Henry við Dani heldur en nokkurn annan leikmann,“ sagði Hjörvar, þáttastjórnandi, um leikmanninn.
Hrafnkell var á sama máli. ,,’Sloganið’ okkar fer vel fyrir hann. Það er elskaður, hataður, aldrei hundsaður. Það er eiginlega bara um Kjartan Henry í Danmörku.“
Hægt er að hlusta á þátt Dr. Football frá því í gær með því að smella hér.