Gísli Eyjólfsson virtist virkilega reiður yfir því að hafa ekki verið í byrjunarliði Breiðabliks í 4-0 sigri á Keflavík í Pepsi Max-deildinni í gær. Málið var rætt í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.
Gísli kom inn á sem varamaður í leiknum þegar hálftími var eftir. Hann stóð sig mjög vel eftir innkomuna og lagði meðal annars upp þriðja mark Blika eftir að hafa tekið frábæran sprett upp völlinn.
,,Það barst mér til eyrna að Gísli Eyjólfsson hafi verið trylltur eftir leik,“ sagði Hjörvar Hafliðason, þáttastjórnandi.
Hrafnkell Freyr Ágústsson, sérfræðingur í þættinum, gat staðfest það að Gísli hafi verið mjög reiður.
,,Maður sá það bara þegar hann lagði upp markið, hann fagnaði ekki einu sinni. Cameran kom á hann og honum var alveg sama, strunsaði víst bara inn í klefa eftir leik.“
Breiðablik er með 4 stig eftir fyrstu þrjár umferðir Pepsi Max-deildarinnar. Þeir mæta Víkingi Reykjavík í næsta leik á sunnudag.
Hægt er að hlusta á þátt Dr. Football frá því í dag með því að smella hér.