Björn Þorfinnsson hefur verið ráðinn ritstjóri DV og tekur við af Þorbjörgu Marinósdóttur sem lét nýverið af störfum.
Björn hóf störf sem blaðamaður á DV í byrjun árs 2015 og gegndi síðar stöðu fréttastjóra hjá miðlinum. Þá hefur hann starfað sem blaðamaður á Fréttablaðinu, en lauk þar störfum í byrjun árs.
„Ég ólst upp sem blaðamaður á DV og þykir afar vænt um þennan miðil. Ég er því afar spenntur að fá tækifæri til að móta stefnu og ásýnd DV til framtíðar og vinna með því öfluga fólki sem starfar á miðlinum í dag,“ segir Björn.
„Aðsóknin á dv.is er gríðarleg og því er um að ræða ótrúlega sterkan vettvang til þess að koma á framfæri fréttum og sögum fólks sem eiga erindi við samfélagið og hrista jafnvel upp í því. Mitt helsta markmið að freista þess að styrkja fréttahluta miðilsins enn frekar og bjóða lesendum upp á góða blöndu af fréttum og afþreyingarefni,“ segir Björn.
Björn er í hópi sterkustu skákmanna landsins og er fyrrum forseti Skáksambands Íslands. Hann státar af alþjóðlegum meistaratitli í íþróttinni sem og tveimur áföngum af þremur að stórmeistaratitli. „Eflaust verður af og til fjallað um skák í DV enda fjölmargt skemmtilegt og áhugavert sem gerist í því samfélagi eins og öllum öðrum. Að sama skapi þýðir þetta nýja starf ekki að ég muni gefa drauminn um stórmeistaratitilinn upp á bátinn enda þarf maður ekki að hætta í skák útaf aldri eða hnémeiðslum. Ég verð alltaf skákmaður sem vinn við blaðamennsku.“
„Það er mikill akkur fyrir DV að fá Björn Þorfinnsson til starfa. Það er einnig ánægjulegt að hann skuli aftur vera genginn í raðir starfsmanna Torgs. Með ráðningu hans mun DV halda áfram að sækja fram, hvoru tveggja sem frétta- og afþreyingarmiðill“, segir Björn Víglundsson forstjóri Torgs, útgefanda DV.