Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er Anton Kristinn Þórarinsson, eini Íslendingurinn sem hefur haft stöðu sakbornings í Rauðagerðismálinu, ekki á meðal þeirra fjögurra sem eru ákærðir í málinu. Anton er því líklega laus allra mála varðandi morðið í Rauðagerði og mun verða talinn hafa komið þar hvergi nálægt.
Angjelin Mark Sterkaj, 35 ára gamall Albani, sem játað hefur morðið á landa sínum, Armando Bequiri, segir alrangt að um samsæri hafi verið að ræða, málið hafi verið persónulegt. Segir hann miður að fólk sem kom hvergi nærri verknaðinum hafi verið bendlað við málið og jafnvel þurft að sitja í gæsluvarðhaldi.
Hvað sem því líður eru þrír aðrir en Angjelin ákærður í málinu. Ekki er ljóst fyrir hvaða sakir. Ekki er ákært fyrir skipulagða brotastarfsemi en við upphaf rannsóknarinnar vaknaði grunur hjá lögreglu um að morðið tengdist uppgjöri hópa í undirheimum.