Tyrkland hefur verið skráð á rauðan lista sem áfangastaður fyrir Breta. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Chelsea og Manchester City, sem og aðdáendur liðanna, en liðin eiga að leika úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Istanbúl þann 29. maí. UEFA hefur verið hvatt til þess að færa leikinn til Bretlands.
Aðdáendur liðanna áttu að fá samtals 8 þúsund miða, 4 þúsund á lið. Fjöldi kórónuveirusmita í Tyrklandi hafa hins vegar gert það að verkum að fólk sem reynir að koma aftur til Bretlands frá landinu gæti verið meinað um aðgöngu.
Frá því að ljóst var að tvö ensk lið myndu leika til úrslita í Meistaradeildinni í ár hefur UEFA verið hvatt til að flytja leikinn til Bretlands. Telegraph hefur nú greint frá því að enska knattspyrnusambandið og breska ríkistjórnin hafi hafið viðræður við UEFA um að flytja leikinn til Bretlands. Rökin fyrir því eru þau að þá gætu leikmenn sloppið við það að fara í sóttkví ásamt því að breskir aðdáendur liðanna gætu mætt á völlinn.
Bretar hafa undanfarið prófað að hleypa áhorfendum aftur inn á vellina sína að hluta til. 4 þúsund áhorfendur fengu að mæta á seinni undanúrslitaleik enska bikarsins og 8 þúsund fengu að mæta á úrslitaleik enska deildabikarins. Vel tókst til í bæði skiptin og eru Bretar því bjartsýnir á að geta haldið úrslitaleik Meistaradeildarinnar, með áhorfendum.
Þess má geta að í heildina er stefnt á að 25 þúsund manns mæti á leikinn í Istanbúl, fari hann fram þar. Eins og áður var nefnt fara 8 þúsund þeirra til stuðningsmanna. Það verður hins vegar áhugavert að fylgjast með framvindu mála í ljósi þessara nýju fregna.