Skilaboðin „Tickets on sale soon“ blasa nú við gestum vefsíðu flugfélagsins Play en það tilkynnti nýverið að það hygðist hefja áætlunarflug til fimm áfangastaða í lok júní. Áfangastaðirnir London, París, Kaupmannahöfn, Alicante og Tenerife ættu að vera Íslendingum kunnugir en þangað hafa þeir streymt í massavís undanfarin ár. Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins, sagði þá jafnframt í þættinum Víglínunni á Stöð 2 á sunnudaginn að félagið væri nú að skoða áfangastaði í Bandaríkjunum til þess að skapa tengiflugsbrú á milli meginlands Evrópu og Bandaríkjanna.
Ljóst er að Play má hafa hraðar hendur ætli þeim að takast að senda fyrstu vélina í loftið í næsta mánuði enda auglýsir nú félagið eftir fjölda starfsmanna á heimasíðu sinni.
Á meðal starfa sem þar eru auglýst má nefna:
Vinnuskráagerð áhafna
Vaktaskrárumsjón
Flugumsjón
Lögfræðing sem starfar undir fjármálastjóra
Þjónustufulltrúa í vaktavinnu
Þjónustufulltrúa í dagvinnu
Sérfræðing í söludeild
Sérfræðing í almannatengslum
Umsjón með sölu og upplifun um borð
Grafískum hönnuði
Sérfræðingi í markaðsmálum
Umsjónarmanni með ferðabókunum starfsmanna og einkennisfatnaði
Bókara
Gjaldkera
Auk þess er auglýst eftir almennum umsóknum.
Listann yfir öll störfin má sjá á heimasíðu Play, hér.