Aftonbladet segir að hann hafi verið skotinn mörgum skotum í efri hluta líkamans. Fjölmennt lögreglulið hefur unnið að rannsókn málsins í nótt en enginn hefur verið handtekinn enn sem komið er. Tugir skothylkja fundust á vettvangi að sögn Aftonbladet.
Talsmaður lögreglunnar sagði í nótt að ungi maðurinn hafi fundist utan við fjölbýlishús og að mörg vitni hefðu verið að morðinu.