Samkvæmt frétt Postdamer stakk konan fórnarlömbin margoft í hálsinn. Hún starfaði á deildinni. Hún er sögð hafa ekið heim til sín eftir ódæðisverkið og er heim var komið hafi hún skýrt eiginmanni sínum frá hvað hún hafði gert skömmu áður. Eiginmaðurinn tilkynnti lögreglunni strax um málið og konan var handtekin skömmu síðar.
Í tilkynningu, sem lögreglan sendi frá sér, kemur fram að rannsókn hafi leitt í ljós að fórnarlömbin hafi öll verið með mikla áverka af völdum „mikils ofbeldis“.
„Ég er í áfalli. Þetta er svo sorglegt,“ hefur Bild eftir ónafngreindum starfsmanni á sjúkrahúsinu.