fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Hestamenn telja Villiketti ógna öryggi sínu

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 29. apríl 2021 09:30

Mynd:Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Formaður húsfélags hestamanna í Hlíðarþúfum í Hafnarfirði sendi bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði nýlega bréf þar sem hann skorar á þau að bregðast við og stöðva starfsemi Villikatta í Hlíðarþúfum. Félagið Villikettir keypti eitt hesthús í Hlíðarþúfum í fyrrasumar.

Fréttablaðið skýrir frá þessu og vísar í bréf formannsins, Gunnars Hallgrímssonar, til bæjaryfirvalda. Þar segir hann að sótt sé að hestamönnum úr öllum áttum en hingað til hafi enginn eigandi látið undan þrýstingi og selt hesthús sitt öðrum en hestamönnum til að nota fyrir hesta fyrr en nú.

Hann segir að um ódýrt húsnæði sé að ræða og mjög mikilvægt sé að hvika ekki frá skilmálum og þar með skapa fordæmi. Stjórn húsfélags Hlíðarþúfna segir engan vafa leika á að starfsemi Villikatta sé óheimil í hesthúsahverfinu. Í bréfinu segir að það sé andstætt skipulagi hesthúsabyggðarinnar og lóðarsamningum að önnur starfsemi sé þar en sú sem tengist hestahaldi. Margir hafi reynt að komast yfir hesthús til að nota undir ótengda starfsemi og nefnir Gunnar þar á meðal vélsmiðju, vélhjólaleigu og bifvélavirkja.

„Villikettir eða önnur starfsemi ótengd hestamennsku, svo sem hundahótel, verkstæði eða bakarí, eiga ekki erindi í hesthúsahverfið og geta jafnvel ógnað hestaheilsu og öryggi hestamanna,“ segir í bréfi hans.

„Það geta allir keypt þessi hesthús og það eru engar kvaðir. Það var einu sinni þannig að bærinn og hestafélagið þurftu að samþykkja kaup, en svo var það tekið út,“ hefur Fréttablaðið eftir Arndísi Björg Sigurgeirsdóttur, formanni Villikatta. Hún sagði einnig að engin eiginleg starfsemi sé í húsi Villikatta á svæðinu. Sjálfboðaliðar komi þangað kvölds og morgna til að gefa villköttum sem séu geymdir þar inni í fimm daga áður en þeim er sleppt eftir að búið er að gelda þá og ormhreinsa. Þar séu örfáir villikettir í einu.

Hún hafnar því að kettirnir geti ógnað heilsu og öryggi hesta og hestamanna. „Hvernig gæti það verið? Ég held að það sé verið að gera eitthvað úr einhverju sem ekkert er,“ sagði hún og bætti við að hesthúsið henti ekki fyrir Villiketti og sé því aðeins til bráðabirgða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Íslendingur fannst látinn á Spáni

Íslendingur fannst látinn á Spáni
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir ráðabrugg um að nauðga og drepa eina skærustu sjónvarpsstjörnu Breta

Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir ráðabrugg um að nauðga og drepa eina skærustu sjónvarpsstjörnu Breta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum