Rafmyntamarkaðnum Thodex var skyndilega lokað í síðustu viku og viðskiptavinir hans geta ekki fengið peningana sína. Þeir óttast að forstjóri fyrirtækisins, Faruk Fatih Özer, hafi stungið af með peninga þeirra enda hann farinn úr landi.
Bloomberg segir að Özer sé í felum og svari engum skilaboðum.
Í síðasta mánuði var Thodex með umfangsmikla auglýsingaherferð til að lokka fleiri viðskiptavini til sín. Nýjum viðskiptavinum var heitið ókeypis Dogecoin fyrir að koma í viðskipti en fljótlega fóru nýju viðskiptavinirnir að skýra frá því að þeir hefðu ekki fengið eina einustu rafmynt.
Á heimasíðu Thodex eru skilaboð um að fólk eigi ekki að trúa þeirri neikvæðu umræðu sem er um markaðinn í fjölmiðlum. Einnig stendur þar að reiknað sé með að heimsþekktir bankar og fjárfestingarsjóðir muni fjárfesta í fyrirtækinu.
Anadolu Agency segir að saksóknarar í Istanbúl hafi hafið rannsókn á fyrirtækinu og forstjóra þess.
Coindesk, sem fjallar um rafmyntir, segir að rafmyntir að verðmæti sem svarar til um 80 milljarða íslenskra króna hafi verið í vörslu fyrirtækisins þegar lokað var fyrir öll viðskipti.