„Við höfum enga ástæðu til að trúa að tækniframfarir og óeigingirni eða siðferði tengist á einhvern hátt,“ sagði Andrew Siemion, yfirmaður hjá SETI, í samtali við Inverse. „Það eru líklega illgjörn samfélög annars staðar í alheiminum og það er eitthvað sem við ættum að hugleiða um leið og við höldum áfram að kanna alheiminn,“ bætti hann við.
Siemion, sem er yfirmaður Berkeley SETI Research Center, sem leitar að ummerkjum um líf utan jarðarinnar, viðrar með þessum orðum áhyggjur flestra sem vinna að leit að vitsmunalífi utan jarðarinnar. Það myndi gjörbreyta heiminum og heimsmynd okkar ef við fáum staðfestingu á að líf finnist utan jarðarinnar en um leið væri engin vissa fyrir að mannkynið myndi lifa það af að hitta vitsmunaverur frá öðrum plánetum.
Eðlisfræðingurinn og SETI-sérfræðingurinn Michio Kaku sagði nýlega svipaða hluti og Siemion. Futurism bendir á að þrátt fyrir þessi varnaðarorð þeirra þá telji hvorugur að þetta sé nægt tilefni til að hætta leit að vitsmunaverum utan jarðarinnar.
„Persónulega held ég að vitsmunaverur, ef þær eru til utan jarðarinnar, séu vinsamlegar en við getum ekki veðjað á það,“ sagði Kaku nýlega í samtali við The Guardian og bætti við: „Ég held að við munum setja okkur í samband við þær en við ættum að fara mjög varlega.“
Þrátt fyrir umræðu um hvort við eigum að setja okkur í samband við vitsmunaverur, ef þær eru til utan jarðarinnar, gleymist oft að við höfum nú í um hundrað ár sent útvarpsmerki út í geiminn þannig að vitsmunasamfélög, sem eru í innan við hundrað ljósára fjarlægð frá jörðinni, gætu hafa heyrt þessi merki ef þau hafa tæknilega kunnáttu til að móttaka þau. „Fólk áttar sig ekki á að það er of seint að leynast,“ sagði Douglas Vakoch, geimlíffræðingur og forseti Messaging Extraterrestrial Intelligence (METI) stofnunarinnar. „Ef þær eru á leið til okkar þá er það okkur í hag að eiga samskipti við þær og sýna þeim að við séum betri spjallfélagar en hádegismatur,“ sagði hann einnig.