Evrópska knattspyrnusambandið UEFA hefur brugðist illa við þessu og óhætt er að segja að talsmenn þess hafi haft uppi stór orð og beinlínis hótað liðunum 12 hörðum viðbrögðum. Í gærkvöldi ræddi Jesper Møller, formaður Danska knattspyrnusambandsins og stjórnarmaður í framkvæmdanefnd UEFA, við fréttamann Danska ríkisútvarpsins um málið. Framkvæmdanefndin hafði þá setið á fundi vegna málsins.
Møller sagðist reikna með að á föstudaginn verði tilkynnt að liðunum 12 verði vikið úr Meistaradeild Evrópu. Þeirra á meðal eru Chelsea, Real Madrid og Manchester City en þessi lið eru komin í undanúrslit keppninnar ásamt Paris St. Germain
„Það verður haldin aukafundur í framkvæmdanefndinni á föstudaginn. Ég á von á að liðin 12 verði þá rekin úr keppnum,“ sagði Møller og átti þá við keppnir á vegum UEFA en það þýðir að Arsenal og Manchester United verða þá einnig rekin úr Evrópudeildinni en liðin eru komin í undanúrslit þar.
Hvað varðar leikmenn liðanna sagði Møller að hann telji þá geta yfirgefið liðin ef þeir vilja. „Ég tel að samningarnir falli sjálfkrafa úr gildi þegar félögin segja sig úr keppni (keppnum UEFA, innsk. blaðamanns). Þá eru leikmennirnir lausir allra mála og geta valið að leika fyrir félag sem er hluti af samstöðunni og félagsskapnum, píramídakerfinu okkar,“ sagði Møller.
Ef liðunum verður vikið úr keppnunum á föstudaginn má segja að sprengja verði sprengd undir stærstu keppni félagsliða í heiminum. „Félögin verða að hverfa úr keppni, sem ég á von á að gerist á föstudaginn, og síðan verður að skoða hvernig er hægt að ljúka keppni í Meistaradeildinni,“ sagði hann.
Reuters segir að Aleksander Ceferins, forseti UEFA, sé sömu skoðunar og Møller og vilji að liðin 12 verði rekin úr keppnum UEFA eins fljótt og hægt er.